Skilmálar

Hjá okkur er 18 ára aldurstakmark eins og lög gera ráð fyrir. Ef að viðskiptavinur gerist uppvís að því að ljúga til um aldur verður vara ekki afhent og greiðsla verður bakfærð óháð samþykki foreldris eða forráðamanns.


Heitar Lummur leitast við að afhenda allar vörur næsta virka dag.  Í undantekningar tilfellum þar sem vara er ekki til á lager eða vegna annarra utanaðkomandi ástæðna þá getur tekið allt að 3 virkum dögum að afhenda vöruna.

 

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun kaupnótu eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt eða afhent. Varan skal vera í upprunalegum og innsigli skal vera órofið. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 14 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi eða afhendingu vöru. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni.

Þurfi að senda vörur til okkar ber viðskiptavini að tilkynna eins fljótt og auðið er að hann ætli að nýta sér skilaréttinn. Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til okkar. Finna má staðlaðar leiðbeiningar og uppsagnareyðublað á neytendasamningi í viðauka 1 og 2 í reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi.

 

Tilkynningar um galla og/eða skemmdir skal senda heitarlummur@heitarlummur.is um leið og þeirra verður vart. HeitarLummur  áskilja sér rétt til að meta hvert tilfelli fyrir sig og ber að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu teljist vara gölluð.

Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003, en vörur sem ætlaður er umtalsvert lengri endingartími en 5 ár geta verið með allt að 5 ára ábyrgð á framleiðslugöllum.  Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru. 

Komi til ábyrgðarviðgerðar bera Heirtar Lummur ekki ábyrgð á skaða á gögnum, stýrikerfi, hugbúnaði, glötuðum hagnaði eða öðrum óvæntum eða afleiddum skaða, sem kann að koma upp við notkun hins selda á ábyrgðartíma. Heitar Lummur áskilja sér rétt á að skipta út vélbúnaði sem bilar á ábyrgðartíma með eins eða sambærilegri vöru ef upp kemur að varahlut sé ekki hægt að fá frá framleiðanda vörunnar.

Flutningskostnaður til og frá verslun fellur ekki undir ábyrgð. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en verkstæði Heitra Lumma, búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af.

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð og gildir ábyrgðin frá kaupdegi. 

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.


Við fögnum athugasemdum um þessa skilmála. Ef þér finnst við ósanngjörn að einhverju leiti eða ef eitthvað er óskýrt, hafðu þá endilega samband við okkur og við munum finna leið til að gera alla ánægða.

Komi upp ágreiningur um þessa skilmála er viðskiptavinum bent á að leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartún 21, 105 Reykjavík
www.kvth.is

Heitar Lummur
FixIT Upplýsingatækni slf.
Kennitala: 510713-0280
270 Reykjavík
VSK Númer: 114771

 

 

Shopping Cart

Takk fyrir innlitið

ÞESSI SÍÐA ER EINGÖNGU FYRIR 18 ÁRA OG ELDRI

Hefur þú náð 18 ára aldri?

Þessi síða selur nikótín púða sem eingöngu eru ætlaðir þeim sem hafa náð 18 ára aldri.